Frans Elvarsson leikmaður Keflavíkur var gríðarlega sáttur við stígin þrjú gegn Fram en Frans átti frábæran leik í liði Keflavíkur.
Keflvíkingar pressuðu stíft í byrjun og komust snemma í 2-0 og var sem þeir væru nánast eina liðið á vellinum í fyrri hálfleiknum.
Það er gott að byrja vinna aftur, við vorum komnir í lægð, þannig að það er gott að vera kominn aftur á sigurbraut. Við leggjum auðvita alla leiki upp með að byrja vel en við hefðum átt að klára þetta algjörlega í fyrri hálfleik við vorum miklu betri en þeir, þeir mættu eiginlega ekki til leiks strax þannig að við hefðum átt að setja annað mark í viðbót á þá í fyrri hálfleik
Við vorum búnir að fá á okkur 8 mörk í seinustu tveimur leikjum þannig að það var markmið hjá okkur að halda hreinu í dag
Nánar er rætt við Frans í sjónvarpinu hér að ofan.






















