,,Ég var svolítið smeykur við þennan leik, við vorum búnir að spila vel í síðustu leikjum og ég óttaðist að menn voru að spila við efsta liðið síðast og neðsta liðið núna og að menn kæmu með einhverja værukærð," sagði Magnús Gylfason þjálfari ÍBV eftir 1-3 sigur á Grindavík á útivelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Grindavík 1 - 3 ÍBV
,,Mér fannst það ekki. Þetta var jafn leikur í fyrri hálfleik en við sköpuðum okkur nokkur góð færi en nýttum þau ekki. Eftir að þeir misstu mann útaf og við héldum áfram að spila fótbolta og ætluðum ekki að flýta okkur um of tókst þetta og við skorum þrjú mörk. Ég er mjög sáttur við mína menn."
,,Það gerist alltaf að þegar þú verður einum fleiri halda menn að liðin valti yfir. En við höfum séð hundrað dæmi um að liðið heldur til baka og skorar eitt í bakið á hinum. En við héldum áfram að spila fótbolta og ég er ánægðastur með það. Spiluðum boltanum á grasinu og sköpuðum fullt af færi og náðum að skora mörk og vinna leikinn."
Nánar er rætt við Magnús í sjónvarpinu að ofan en þar segir hann meðal annars: ,,Við erum búnir að skora 13-2 í síðustu fjórum leikjum svo ég er bara mjög sáttur."























