Heimild: Vefur KSÍ
Kvennalandslið Íslands mætir liði Búlgaríu í undankeppni EM 2013 klukkan 15:00 að íslenskum tíma í dag en leikið er ytra.
Íslenska liðið er komið í þriðja sætið í sínum riðli eftir að Noregur og Belgía unnu sína leiki í dag. Sigur í dag er því gríðarlega mikilvægur.
Íslenska liðið er komið í þriðja sætið í sínum riðli eftir að Noregur og Belgía unnu sína leiki í dag. Sigur í dag er því gríðarlega mikilvægur.
,,Það fer mjög vel um okkur á hótelinu og æfingavöllurinn er hér stutt frá. Það er mikill hiti, glampandi sól allan daginn og gæti orðið allt að 30 stiga hiti þegar kemur að leiknum," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari íslenska liðsins við vef KSÍ í gær en þá hafði liðið átt langt og strangt ferðalag sem tók allan daginn í fyrradag.
Allir leikmenn íslenska liðsins eru heilir og klárar í slaginn en Sigurður Ragnar hélt utan með sama 18 manna hóp og vann Ungverjaland hér heima á laugardaginn. Liðið hafði mætt Búlgaríu í fyrri leiknum hér heima í fyrra og vann þá 6-0.
,,Það má búast við mun erfiðari leik hjá okkur bæði útaf því að okkur sjálfum hefur gengið verr á útivelli heldur en heimavelli og ekki síður útaf því að mikill munur hefur verið á úrslitum Búlgaríu á heima og útivelli," sagði Sigurður Ragnar á vef KSÍ.
,, Þannig töpuðu þær núna síðast gegn Noregi 11-0 úti í Noregi en töpuðu bara 3-0 gegn Noregi hér í Búlgaríu þar sem að það tók Noreg 70 mínútur að skora fyrsta mark leiksins og Noregur bætti svo við 2 mörkum í uppbótartíma. Búlgaría tapaði bara 1-0 hérna á móti Belgíu og 1-0 á móti Norður Írlandi. Danmörk gerði jafntefli við Búlgaríu hérna 0-0 í síðustu undankeppni. Þær eru því sýnd veiði en ekki gefin."
Noregur er á toppi 3. riðils með 18 stig og Belgía í öðru sæti með 17 en bæði hafa leikið 8 leiki. Leikur Íslands í dag er áttundi leikur liðsins en þær eru í þriðja sæti með 16 stig og geta því tekið toppinn með 19 stig takist þeim að vinna í dag.


