Muntari frá í sex mánuði
Sulley Muntari, miðjumaður ítalska liðsins AC Milan, fór undir hnífinn í gær vegna krossbandaslita. Félagið opinberar þetta á heimasíðu sinni en leikmaðurinn spilar ekki næstu sex mánuði.
Muntari er á lánssamningi frá Inter en samningurinn gildri til ársins 2014. Hann meiddist á vinstri fæti.
Hann kom til AC Milan í janúar og skoraði þrjú mörk í þeim þrettán leikjum sem hann spilaði með liðinu í ítölsku A-deildinni. Stuðningsmenn liðsins voru gríðaránægðir með frammistöðu hans.
Muntari á 74 landsleiki að baki fyrir Gana en hann er 27 ára.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
14:40