Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 21. júní 2012 12:12
Magnús Már Einarsson
Sindri Snær kviðslitinn - Frá keppni fram í ágúst
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri Snær Jensson, markvörður Vals, verður frá keppni í að minnsta kosti sex vikur eftir að hafa farið í aðgerð vegna kviðslits.

,,Ég fór í aðgerð í morgun og ligg núna á spítalanum og borða ristað brauð með smjöri og osti," sagði Sindri léttur í bragði við Fótbolta.net í dag.

Sindri fann fyrst fyrir meiðslunum í lok síðasta mánaðar og þau versnuðu síðan í kjölfarið.

Ásgeir Þór Magnússon hefur varið mark Vals í síðustu þremur leikjum í fjarveru Sindra og mun gera það áfram næstu vikurnar.

,,Ég er hjá Sigurði Blöndal sem er mjög fær læknir. Hann sagði við mig að ég mætti hjóla eftir tvær vikur, skokka og sparka í bolta eftir fjórar vikur og æfa eftir sex vikur. Ég er maður comebacksins þannig að ég kem bara sterkari til baka."
Slapp
banner
banner