Zlatan Ibrahimovic verður í treyju númer 10 hjá AC Milan á næsta tímabili. Clarence Seedorf sem hefur borið tíuna er hættur hjá félaginu en samningur hans rennur út um mánaðamótin.
Zlatan var númer e11 á liðnu tímabili.
Hinn 36 ára Seedorf hefur verið í herbúðum AC Milan síðan 2002 og segist vilja nýja upplifun í boltanum áður en skórnir fara á hilluna. Ekki er vitað hvert næsta skref hans verður.
„Seedorf er leikmaður sem hefur átt magnaðan feril og ég á frábærar minningar tengdar honum," sagði Adriano Galliani, varaforseti AC Milan.

