Tíu leikmenn sem gætu farið til Man City
Vefsíðan Off The Post hefur tekið saman lista yfir tíu leikmenn sem gætu gengið til liðs við Manchester City áður en nýtt tímabil hefst. Í gær birtum við samskonar lista hjá Liverpool.
1. Robin Van Persie
Leiðinlega félagaskiptasaga sumarsins? Það eru allavega góðar líkur á því að stuðningsmenn Arsenal verði skildir eftir í sárum. Eru Olivier Giroud og Lukas Podolski bara fengnir til að fylla í skarðið hjá Arsenal?
Líkur: 8/10
2. Radamel Falcao
Falcao yrði góður kostur ef Van Persie er ekki að koma. En er jafnvel City tilbúið að taka þá áhættu að borga Atletico Madrid 45 milljónir punda fyrir sóknarmann sem aldrei hefur spilað á Englandi?
Líkur: 5/10
3. Edison Cavani
Ekki ódýrasti kosturinn en Napoli verður ekki í Meistaradeildinni og því líklegt að Cavani vilji breyta til. Gæti verið að honum langi samt frekar til félags þar sem hann fær að vera aðalmaðurinn.
Líkur: 6/10
4. Gonzalo Higuain
Á ekki byrjunarliðssæti hjá Real Madrid. Ef hann ákveður að fara er líklegt að PSG komi með fáránlegt tilboð. Það sem mælir á móti því að hann fari til City er að hann gæti líka þurft að vera varamaður þar.
Líkur: 4/10
5. Zlatan Ibrahimovic
Balotelli, Tevez og Zlatan allir í sama klefanum. Það myndi allavega hrista vel upp í málunum ef Zlatan mætir í úrvalsdeildina.
Líkur: 5/10
6. Javi Martinez
Getur Man City tekið yfir heiminn með Nigel de Jong og Gareth Barry á miðjunni? Er Javi Martinez hjá Athletic Bilbao kannski púsluspilið sem vantar?
Líkur: 8/10
7. Gareth Bale
Mögnuð kaup? Myndi líklega kosta um 40 milljónir punda en sögur segja að það sé órói innan leikmannahóps Tottenham eftir að Harry Redknapp fór. Myndi líklega færast aftur í vinstri bakvarðastöðuna ef hann færi í City.
Líkur: 3/10
8. Wesley Sneijder
Kannski ekki alveg leikmaðurinn sem City þarf en maður eins og Sneijder á ekki að vera að leika í forkeppni Evrópudeildarinnar. Líklegra að hann fari samt til Bayern eða Juventus.
Líkur: 6/10
9. Nicolas Gaitan
Þessi vængmaður Benfica hefur verið orðaður við Manchester United en nú þegar Kagawa er kominn þangað kæmi ekki á óvart þó Gaitan yrði ljósblár.
Líkur: 6/10
10. Daniel Sturridge
Margir búast við því að Sturridge fari frá Chelsea en það kæmi á óvart ef hann myndi snúa aftur til Man City. Einfaldlega vegna þess að hann kæmist ekki í byrjunarliðið.
Líkur: 3/10
Sjá einnig:
Tíu leikmenn sem gætu farið til Liverpool

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar