Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 25. júní 2012 12:15
Magnús Már Einarsson
Rúnar Kristinsson: Spilum á gervigrasi í Evrópukeppni
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
,,Þetta er fín niðurstaða. Þetta var nokkuð sterkur hópur sem við vorum í og möguleikarnir voru ekkert sérstaklega spennandi. Þetta voru spennandi lið en erfiðir kostir eins og Basel," sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR við Fótbolta.net í dag en liðið mun mæta HJK Helsinki í annarri umferð Meistaradeildarinnar.

,,Það er stutt að fara til Finnlands og við ættum að geta aflað okkur upplýsinga um liðið. Síðan þurfum við að sjá hvaða möguleika við höfum. HJK er greinilega langbesta liðið þarna og þeir hafa verið að standa sig ágætlega í Evrópukeppninni. Þetta er erfitt verkefni en spennandi fyrir okkur að sjá hvar við stöndum gegn svona liði."

KR hefur vegnað vel í Evrópudeildinni undanfarin ár en liðið mun nú fá stærra verkefni í Meistaradeildinni.

,,Við höfum fengið að kynnast sterkum andstæðingum undanfarin ár eins og Basel, Larissa frá Grikklandi og Zilina og Tbilsi í fyrra. Þetta eru öðruvísi fótboltalið en núna fáum við Finna og ég hugsa að þeir séu miklu líkari okkur. Þetta gætu orðið öðruvísi leikir," segir Rúnar en íslenskum liðum hefur gengið illa að komast áfram í Meistaradeildinni.

,,Íslenskum liðum hefur ekkert gengið að komast áfram í þessari keppni undanfarin ár og það er áskorun fyrir okkur að gera betur en þetta verður gríðarlega erfitt, ég held að þetta sé hörkusterkt lið."

Fyrri leikurinn fer fram í Finnlandi 17 eða 18. júlí en sá síðari verður á KR-vellinum viku síðar.

,,Við höfum undantekningalaust byrjað heima undanfarin ár en við byrjum úti núna. Þeir eru með nýjan gervigrasvöll svo við spilum útileik í Evrópukeppni á gervigrasi," sagði Rúnar að lokum um lið HJK.
Slapp
banner
banner