FH gæti mætt Helga Val og félögum
Búið er að draga í fyrstu og aðra umferð í Evrópudeildinni. ÍBV og Þór munu mæta írskum liðum í fyrstu umferð á meðan FH-ingar mæta liði frá Liechtenstein.
Ef FH-ingar vinna USV Eschen-Mauren er ljóst að Hafnfirðingar munu mæta AIK frá Svíþjóð í annarri umferðinni.
Helgi Valur Daníelsson leikur með AIK en liðið er í þriðja sæti í sænsku deildinni í augnablikinu.
Þórsarar munu mæta Mladá Boleslav frá Tékklandi ef þeir ná að leggja Bohemians í fyrstu umferðinni.
Þá mun ÍBV mæta Siroki Brijeg frá Bosníu ef liðið nær að leggja St Patrick's í fyrstu umferð.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
11:12