Heimild: Reuters
Xabi Alonso, miðjumaður Spánverja, segir að liðið muni ekki breyta leikstíl sínum þrátt fyrir að sumir kvarti yfir því að hann sé leiðinlegur.
Spánverjar hafa haldið boltanum innan liðsins löngum stundum á EM og sumir telja að liðið ógni markinu ekki nógu mikið.
Spánverjar hafa haldið boltanum innan liðsins löngum stundum á EM og sumir telja að liðið ógni markinu ekki nógu mikið.
,,Það er þeirra skoðun og hún á jafnmikinn rétt á sér og aðrar skoðanir," sagði Alonso á fréttamannafundi í dag en Spánverjar mæta Portúgölum í undanúrslitum á miðvikudag.
,,Hvað sem fólk segir þá held ég að við munum ekki breyta til."
,,Ég er nokkuð viss um að flestir stuðningsmenn eru að njóta þess að horfa á frábæra fótboltaleiki hjá frábærum fótboltaliðum."




