Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 25. júní 2012 17:30
Elvar Geir Magnússon
Prandelli: Þýska liðið mjög sterkt en ekki ósigrandi
Cesare Prandelli, landsliðsþjálfari Ítalíu, viðurkennir að Þýskaland sé sigurstranglegra þegar þessi tvö lið mætast í undanúrslutum Evrópumótsins á fimmtudag.

„Þýskaland er líklegra. En við búum okkur undir það að mæta sterku liði en ekki ósigrandi," segir Prandelli.

„Gegn Þjóðverjum er ekki hægt að sitja bara til baka og vera fyrir framan vítateiginn. Ég vil frekar að við fáum mark á okkur úr skyndisókn í staðinn fyrir að þjást í vörninni í 20 mínútur."

„Mínir menn eru alltaf að átta sig betur á því hvað þeir geta. Ef lið á 30 skot á markið vinnur það níu leiki af hverjum tíu."

Þýskaland vann Grikkland á föstudag, 48 tímum áður en Ítalía þurfti að fara í gegnum 120 mínútur og vítaspyrnukeppni gegn Englandi.

„Það breytir miklu. UEFA þarf að skoða þetta vandamál, þessir tveir frídagar sem Þýskaland fékk aukalega eru ekki sanngjarnir," segir Prandelli.
Slapp