Heimild: BBC
Troy Deeney, framherji Watford, var í dag dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir líkamsárás.
Deeney, sem er 23 ára, réðst á hóp nemenda í Birmingham.
Einn maður kinnbeinsbrotnaði í átökunum og sauma þurfti 20 spor hjá öðrum manni sem Deeney réðist á.
Þá náðust upptökur af því þegar Deeney sparkaði í höfuðið á einu af fórnarlömbunum.

Deeney hefur verið í röðum Watford frá því árið 2010 en hann lék áður með Walsall eftir að hafa verið í yngri flokkunum hjá Aston Villa.