Stjarnan áfram - Karl Brynjar fleygði Val úr leik
Tveimur síðustu leikjum 16-liða úrslita Borgunarbikarsins í kvöld var að ljúka, en Stjarnan og Þróttur fóru þar áfram.
Stjarnan og Reynir Sandgerði skildu jöfn eftir venjulegan leiktíma 0-0 og þurfti því að draga til framlengingar. Þar hafði Stjarnan betur, en það var danski leikmaðurinn, Alexander Scholz, sem að tryggði heimamönnum sigur.
Þróttur úr Reykjavík og Valur gerðu 1-1 jafntefli eftir venjulegan leiktíma, en Hörður Sveinsson hafði komið Val yfir áður en Oddur Björnsson jafnaði.
Leikurinn fór því í framlengingu, en það leit allt út fyrir að vítakeppni myndi skera úr um sigurvegara, áður en Karl Brynjar Björnsson mætti og tryggði Þrótturum sigur með marki á 119. mínútu. Lokatölur því 2-1 og Þróttur áfram
Úrslit og markaskorarar:
Stjarnan 1-0 Reynir S.
1-0 Alexander Scholz ('104 )
Þróttur R 2-1 Valur
0-1 Hörður Sveinsson ('23 )
1-1 Oddur Björnsson ('49 )
2-1 Karl Brynjar Björnsson ('119 )
Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar



