Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
   mán 25. júní 2012 22:46
Brynjar Ingi Erluson
Þorvaldur Örlygsson: Fannst leikurinn í sjálfu sér ekki jafn
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
,,Maður er sáttur við að komast áfram og út á það gengur að liðið sem vinnur er áfram og er í pottinum í næstu umferð," sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram eftir sigur liðsins á Aftureldingu í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.

Lestu um leikinn: Afturelding 2 -  3 Fram

Fram vann með þremur mörkum gegn tveimur, en Sveinbjörn Jónasson tryggði liðinu sigur þegar fimmtán mínútur voru eftir af leiknum.

,,Ég held í sjálfu sér að leikurinn hafi ekki verið jafn, en að sama skapi opna þeir leikinn með því að jafna og setja pressu og geta náttúrulega stolið þessu líka. Þeir gátu jafnað þarna á lokamínútunni."

,,Vissulega vorum við meira með boltann og sköpuðum okkur sénsa til þess að klára leikinn, en á meðan að 90 mínúturnar eru og alltaf séns fyrir hitt liðið og þá er alltaf hætta á þessu."
sagði Þorvaldur að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp