,,Við áttum að komast í 1-0," sagði Davíð Snorri Jónasson, þjálfari KB, léttur eftir 4-0 tap liðsins gegn Selfyssingum í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
,,Við lögðum bara upp með það að pakka í vörn og halda markinu í hreinu og það gekk svo sem allt í lagi. Við fengum svo sem eitt eða tvö færi til þess að skora, og eitt sem var alveg dauðafæri, þar sem ég hefði viljað skora að sjálfsögðu."
,,Fyrstu tvö mörkin, 2-0 í hálfleik. Þetta voru föst leikatriði, en það skiptir svo sem ekki máli, skiptir engu máli. Skiptir ekki máli hvort þú sért fyrstu deildarlið, úrvalsdeildarlið eða þriðju deildarlið, þú átt alltaf að geta varist því."
,,Við vorum ekki niðurlægðir, en kannski er 4-0 stórt. Mörkin eru klaufaleg, fannst okkur, en við vorum ekki niðurlægðir. Við reyndum að fara yfir þetta í gær í svona tuttugu mínútur hvernig ætti að verjast og svo reitur og spil, hefðum átt að nota aðeins meiri tíma í þetta, ég veit það ekki."
,,Það er alla vega spennandi verkefni að vera 1-0 yfir hérna, það er alveg klárt. Hann er einn gegn markmanni og á að skora, hann veit það alveg, en fín sókn. Markmiðið í hálfleik, vorum 2-0 undir og reyna að fara aðeins framar og spila boltanum, en þetta var allt í lagi."
,,Ég meina við fórum ekki áfram og missum því af Nings niðri í KSÍ á morgun eða hinn, eða eitthvað," sagði hann að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.





















