Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 25. júní 2012 23:55
Magnús Valur Böðvarsson
Jens Elvar: Sprakk eins og sápukúla í höndunum á honum
Jens Elvar Sævarsson er þjálfari Reynis
Jens Elvar Sævarsson er þjálfari Reynis
Mynd: Kristján Blöndal
Jens Elvar Sævarsson var afar svekktur en stoltur af liði sínu sem barðist hetjulega gegn Stjörnumönnum í kvöld.

,,Það er alltaf svekkjandi að tapa leik en við getum verið virkilega stoltir og sáttir við okkar frammistöðu inná vellinum í dag við fengum færi í þessum leik, vorum þolinmóðir og vorum klaufar að skora ekki í seinni hálfleik þegar við sluppum einir í gegn frammistaðan í heilt yfir frábær og hver einasti leikmaður sem tók þátt í þessum leik í okkar liði á hrós skilið," sagði Jens við Fótbolta.net eftir leik.

,,Við ætluðum að liggja til baka og vera þéttir og sprengja svo upp sem að tókst virkilega vel uppá köflum en þeir fengu auðvita einhver færi en það var alveg við því að búast en við réðum við þá að mestu leyti en leikplanið gekk upp í 99% tilfella eigum við ekki að segja það."

,,Þetta mark var auðvitað bara klaufaskapur, mér sýndist markmaðurinn missa boltann úr höndunum hann sprakk eins og sápukúla í höndunum á honum þar sem hann fellur fyrir framan hann og eitt einbeitingarleysi á móti jafn góðu liði og Stjörnunni þá er það bara rándýrt."

Reynismenn eru á toppnum í 2.deildinni og stefnan er klárlega sett á 1.deildina.

,,Við erum á toppnum í dag og það væri bara vitleysa að segja þér það að ég ætlaði að gefa það frá mér, ég hef fulla trúa á þessum hóp sem ég hef og ef að menn gefa það sem menn hafa gefið hingað til og byggja ofan á þessa frammistöðu í dag þá er ég virkilega bjartsýnn á að við höldum þessu sæti."
Slapp
banner
banner
banner