Spænskir fjölmiðlar segja Drogba á leið til Barcelona
Spænskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Didier Drogba, leikmaður Shanghai Shenhua sé á leið í viðræður við Barcelona á Spáni.
Drogba, sem er 34 ára gamall framherji gekk til liðs við Shanghai Shenhua fyrir nokkrum dögum síðan á frjálsri sölu, en hann gerði tveggja ára samning við félagið og gaf þá þegar út þá yfirlýsingu að hann yrði kínverska útgáfan af David Beckham.
Hann hafði þá áður tryggt Chelsea sigur í Meistaradeild Evrópu, en hann lék með Chelsea í átta ár áður en hann ákvað að segja þetta gott í sumar. Núna aðeins nokkrum dögum eftir að hafa gengið frá samningum við Shanghai Shenhua þá hafa sögusagnir verið keyrðar af stað.
Spænskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Drogba sé með klásúlu í samning sínum, sem segir til um að hann megi fara á frjálsri sölu til Barcelona. Drogba og umboðsmaður hans eru þá sagðir á leið til Barcelona að hefja viðræður við félagið, en talið er þó að launakröfur hans séu of háar.
Það verður gaman að fylgjast með framvindu málsins, en sé eitthvað sannleikskorn í þessu, þá er ljóst að samningur hans við Shenhua sé einn sá stysti í sögunni.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:00
11:12