Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 26. júní 2012 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Matias Silvestre að fara til Inter
Maurizio Zamparini, forseti Palermo, hefur staðfest að Matias Silvestre sé á leið til Inter.

Silvestre er 27 ára gamall miðvörður frá Argentínu sem kom til Palermo síðasta sumar. Silvestre var yfirleitt í byrjunarliði Palermo á nýliðnu tímabili en hann skoraði fimm mörk á tímabilinu.

,,Við lukum viðræðum við Inter í sambandi við Silvestre í síðustu viku," sagði Zamparini við Sportitalia.

,,Það hefur verið talað um að Federico Balzaretti gæti verið á förum, en ég ætla mér ekki að selja hann. Hann verður áfram hjá okkur."
Slapp
banner
banner
banner