Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 27. júní 2012 18:30
Sebastían Sævarsson Meyer
FC Bayern og Wolfsburg hafa náð samkomulagi um Mandzukic
Bayern München hefur náð samkomulagi við Wolfsburg um króatíska framherjan Mario Mandzukic en þetta var tilkynnt á heimasíðu Bayern í dag.

Talið er að Bayern muni greiða 13 milljónir evra fyrir Mandzukic sem mun gangast undir læknisskoðun á næstu dögum og loks skrifa undir fjögurra ára samning.

Mandzukic vakti mikla athygli á EM í sumar með Króatíu þegar hann skoraði þrjú mörk í riðlakeppninni sem hjálpaði liðinu þó ekki að komast í útsláttarkeppnina.

,,Við erum mjög ánægðir að fá einn af betri sóknarmönnum þýsku úrvalsdeildarinnar sem sýndi einnig á EM hvað í honum býr. Hann mun styrkja liðið enn meira," sagði Christian Nerlinger, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern.

Mandzukic er sjötti leikmaðurinn sem Bayern fær í sumar en hann skoraði 20 mörk fyrir Wolfsburg síðan hann kom frá Dinamo Zagreb árið 2010.
Slapp
banner
banner
banner