Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 29. júní 2012 15:27
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Ben Foster til WBA (Staðfest)
West Bromwich Albion hefur keypt markvörðinn Ben Foster frá Birmingham en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Foster var í láni hjá WBA á síðasta tímabili þar sem hann stóð sig með prýði og hélt meðal annars tíu sinnum hreinu í ensku úrvalsdeildinni.

Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur núna skrifað undir þriggja ára samning við WBA með möguleika á tveggja ára framlengingu.

Foster var á sínum tíma á mála hjá Manchester United en hann lék einungis tólf leiki með aðalliðinu þar.
Slapp
banner
banner