Heimild: Football Italia
Ítalska úrvalsdeildarfélagið AS Roma hefur fest kaup á brasilíska leikmanninum Marquinho frá Fluminense í Brasilíu.
Marquinho, sem er 25 ára gamall getur leikið bæði sem miðjumaður og sókndjarfur bakvörður, en hann var á láni hjá Roma síðari hluta síðasta tímabils þar sem hann gerði fína hluti.
Hann skoraði þrjú mörk í tólf leikjum fyrir félagið, en nú er ljóst að Roma hefur fest kaup á kappanum. Upphaflega leit út fyrir að hann yrði ekki áfram hjá liðinu þar sem félögin gátu ekki komist að samkomulagi um kaupverð, en eftir langar viðræður hækkaði Roma boð sitt.
Hann kemur því til félagsins fyrir 3,5 milljónir evra, en hann gerði fjögurra ára samning við Roma.



