Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 30. júní 2012 07:00
Magnús Már Einarsson
Snæfell skipti þrisvar um markvörð í sama leiknum
Páll Margeir Sveinsson þjálfari Snæfellinga.
Páll Margeir Sveinsson þjálfari Snæfellinga.
Mynd: Þorsteinn Eyþórsson
Snæfell í 3. deild notaði fjóra mismunandi markverði í 24-0 tapi sínu gegn Hvíta riddaranum í gærkvöldi.

Snæfellingar gerðu fyrst markmannsskipti í stöðunni 6-0 en þá fór miðjumaður liðsins í markið og markvörðurinn tók stöðu hans á miðjunni. Í stöðunni 8-0 skiptu Snæfellingar nýjum markverði inn á og hann stóð vaktina lengi vel í leiknum.

Undir lokin í stöðunni 21-0 skiptu Snæfellingar síðan um markvörð í þriðja skipti en varnarmaður liðsins tók þá markmannshanskana og sá leikmaður sem var í markinu fór út.

,,Við náðum ekki að tryggja okkur markvörð til að spila útileikina í sumar. Við eigum góðan markvörð í hólminum sem getur bara verið í heimaleikjunum. Hann er læknir á bakvakt og má ekki fara úr bænum. Við erum svolítið bundnir af þessu markmannsleysi og breiddin er ekki nógu mikil hjá okkur. Þetta hefur ekki verið gæfulegt í síðustu leikjum," útskýrði Páll Margeir Sveinsson þjálfari Snæfells meðal annars í viðtali við Fótbolta.net eftir leik.

Í 17-0 tapi Snæfellinga gegn Þrótti Vogum um síðustu helgi skipti liðið einnig þrívegis um markvörð en Páll vonast til að nýr markvörður gangi til liðs við félagið þegar félagaskiptaglugginn opnar þann 15. júlí.

Sjá einnig:
Þjálfari Snæfells: Grásleppuvertíð hefur skemmt mikið
Slapp
banner
banner
banner