Heimild: BBC
Reading á Englandi hefur fengið til sín enska miðjumanninn Danny Guthrie frá Newcastle United.
Guthrie, sem er 25 ára gammall var að renna út á samning hjá Newcastle en hann átti aðeins örfáa daga eftir hjá félaginu.
Hann ákvað því að finna sér nýtt lið, en hann ákvað að semja við nýliða Reading til næstu þriggja ára.
Hann lék 104 leiki og skoraði níu mörk á tíma sínum hjá Newcastle. en áður var hann á mála hjá Liverpool.


