Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 30. júní 2012 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Goal.com 
Umboðsmaður: Lavezzi við það að skrifa undir hjá PSG
Ezequiel Lavezzi, leikmaður Napoli á Ítalíu er við það að skrifa undir hjá franska stórliðinu Paris Saint-Germain.

Lavezzi, sem er argentískur landsliðsmaður, hefur verið lykilmaður í liði Napoli undanfarin ár, en liðið hefur staðið sig feyki vel í ítölsku deildinni og hefur verið með einhverja eitruðust sókn Evrópu síðustu ár.

Nú er hinsvegar ljóst að liðið kemur til með að missa mikilvægan part af þríeyki sínu, en Lavezzi hefur þegar samþykkt fimm ára samning hjá franska liðinu Paris Saint-Germain og kemur hann til með að ganga til liðs við félagið á næstu dögum.

,,Við erum enn að klára nokkur atriði, en við ættum að geta kynnt félagaskiptin á mánudag eða þriðjudag," sagði Alejandro Mazzoni, umboðsmaður leikmannsins.
Slapp
banner
banner