Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 30. júní 2012 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Goal.com 
Lucio yfirgefur Inter Milan
Brasilíski varnarmaðurinn Lucio hefur yfirgefið ítalska félagið Inter Milan, en hann komst að samkomulagi við félagið um að rifta samning sínum.

Lucio, sem er 34 ára gamall átti tvö ár eftir af samning sínum hjá Inter, en ákvað að eyða honum til þess að eiga möguleika á að komast í brasilíska landsliðið fyrir HM 2014, sem fer einmitt fram í heimalandinu.

Leikmaðurinn lék 136 leiki fyrir Inter, en hann skoraði fimm mörk og vann alla þá titla sem í boði voru, meðal annars þrennuna árið 2000 er liðið vann itölsku deildina, bikarinn og Meistaradeild Evrópu.

Hann leitar því á önnur mið núna, en líklegt þykir að hann komi til með að spila í Brasilíu, til þess að vinna aftur inn sæti sitt í landsliðinu, þar sem hann hefur spilað 105 leiki og meðal annars verið heimsmeistari með liðinu.
Slapp
banner
banner