Michel Platini, forseti UEFA knattspyrnusambandsins, segir að Evrópumótið 2020 gæti verið haldið út um alla Evrópu.
Hingað til hafa öll Evrópumót verið haldin í einu eða tveimur löndum í einu, en Platini segir það geta breyst og að þarnæsta Evrópumót gæti verið haldið í 12 eða 13 mismunandi borgum víðsvegar um Evrópu.

,,Evrópumótið 2020 gæti verið haldið út um alla Evrópu," sagði Platini á fréttamannafundi á laugardaginn.
,,Þetta mál verður rætt alvarlega, við munum halda langar rökræður um málið. Þetta er hugmynd sem heillar mig einstaklega mikið. Þetta myndi auðvelda allt gríðarlega mikið og spara mikinn pening.
,,Þetta er enn á byrjunarstigi. Eins og ég hef sagt þá gæti mótið verið haldið í 12 eða 13 borgum en það gæti þó alveg eins verið haldið í 24 eða 32 borgum. Það myndi ekki þurfa að byggja leikvanga eða flugvelli fyrir mótið, sem er mikilvægt í ljósi bágrar fjárhagsstöðu Evrópu."