Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 30. júní 2012 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Steven Whittaker til Norwich (Staðfest)
Norwich City hefur staðfest komu skoska landsliðsmannsins Steven Whittaker í herbúðir sínar.

Whittaker er fjölhæfur varnarmaður sem getur spilað í öllum stöðum í vörn og á miðju, en hann kemur frá Rangers í Skotlandi.

Whittaker kemur frítt til félagsins en hann er einn leikmanna Rangers sem fengu að fara frítt frá félaginu nú á dögunum vegna eigendaskipta félagsins.

,,Steven er gríðarlega fjölhæfur leikmaður. Hann getur spilað hvar sem er í vörninni og á miðjunni, mikið af fjölhæfni þar," sagði Chris Hughton, knattspyrnustjóri Norwich.

,,Hann er vanur að spila á háu stigi með Rangers, hann er gríðarlega leikreyndur og á landsleiki að baki fyrir Skotland. Það er klárt að úrvalsdeildin mun ekki reynast of stórt skref fyrir hann."
Slapp
banner
banner