Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 30. júní 2012 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Casillas ekki hissa á velgengni Ítalíu
Iker Casillas, landsliðsmarkvörður Spánverja, segist ekki vera hissa á velgengni Ítalíu á Evrópumótinu í sumar.

Spánverjar mæta Ítölum í úrslitaleik mótsins en liðin gerðu 1-1 jafntefli fyrr í mótinu í opnunarleik C-riðils.

,,Ítalía hefur spilað vel gegnum allt mótið, það kemur mér ekki á óvart að Ítalir séu að spila við okkur til úrslita," sagði Casillas við Onda Cero útvarpsstöðina.

,,Mario Balotelli og Cassano mynda frábært sóknarpar. Þegar Cassano lék með mér hjá Real Madrid var hann á allt öðru stigi í lífinu, hann er allt annar maður í dag.

,,Buffon er frábær og einhver sem allir líta upp til. Ég er mjög ánægður að sjá að hann er enn að spila á svona háu stigi vegna þess að það gefur mér von fyrir framtíðina."


Casillas er 31. árs gamall á meðan Buffon er 34. ára.
Slapp
banner
banner