Víkingur Ólafsvík 4 - 0 BÍ/Bolungarvík
1-0 Arnar Sveinn Geirsson ('25)
2-0 Edin Beslija ('57, víti)
3-0 Guðmundur Magnússon ('70)
4-0 Alfreð Már Hjaltalín ('82)
Rauð spjöld: Sigurgeir Sveinn Gíslason ('57) (BÍ/Bolungarvík), Helgi Óttarr Hafsteinsson ('57) (Víkingur Ó.)
1-0 Arnar Sveinn Geirsson ('25)
2-0 Edin Beslija ('57, víti)
3-0 Guðmundur Magnússon ('70)
4-0 Alfreð Már Hjaltalín ('82)
Rauð spjöld: Sigurgeir Sveinn Gíslason ('57) (BÍ/Bolungarvík), Helgi Óttarr Hafsteinsson ('57) (Víkingur Ó.)
Það var frábært veður í Ólafsvík í dag þegar lið Víkings Ó og BÍ/Bolungarvíkur mættust. Sól og blíða góð mæting á völlinn.
Nokkuð jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og voru þau bæði að þreifa fyrir sér, Víkingarnir meira með boltann en BÍ/Bolungarví varðist vel og beitti skyndisóknum. það var svo á 25. mínútu, sem Arnar Sveinn Geirsson kom heimamönnum yfir með góðu skoti eftir glæsilegan samleik við Eldar Masic.
Þetta mark breytti leiknum mikið og virtist sem einhver spennan losnaði hjá Víkingunum. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks voru heimamenn mikið sterkari og sköpuðu sér nokkur hættuleg færi. En staðan var 1-0 í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn hófst fjörlega og fengu bæði liðin hættuleg færi. Alexander Veigar Þórarinsson fékk til að mynda dauðafæri eftir fasta fyrirgjöf en skóflaði honum yfir markið af stuttu færi. En á 57. mínútu mín fengu heimamenn vítaspyrnu eftir að brotið var á Guðmundi Steini Hafsteinssyni þegar hann var að sleppa einn í gegn. Sigurgeir Sveinn Gíslason var sá brotlegi og hann fékk að líta rauða spjaldið hjá Gunnari Sverri Gunnarssyni dómara leiksins.
Þegar átti að taka vítaspyrnuna var einhver barningur á vítateigslínunni og menn að ýta í hvorn annan, og leikmaður BÍ féll við. Dómari leiksins kallaði mennina til sín og gaf þeim sitthvort gult spjaldið. Afmælisbarnið Helgi Óttarr Hafsteinsson fékk þá sitt annað gula spjald og þar með rautt. Jafnt í liðum 10 á móti 10. Edin Beslija skoraði úr vítinu 2-0, fyrir heimamenn.
Eftir þetta mark virtist sem báráttuhugur BÍ-manna slökkna. Guðmundur Magnússon skoraði svo á 70. mínútu með góðu skoti utan úr teig. Staðan 3-0. Alfreð Már Hjaltalín skoraði svo fjórða markið á 82 mín, eftir að hafa fengið boltann eftir hornspyrnu, kom á ferðinn og lék í átt að vítateig og plantaði honum í fjærhornið í gegnum allan pakkann í teignum. 4-0 verðskuldaður sigur og Ólafsvíkingar geta gengið sáttir frá þessum leik.





