Tveimur leikjum var að ljúka í 2. deild karla nú rétt í þessu, en þar gerðu KF og HK jafntefli, og Völsungur náði sigri á KFR fyrir norðan.
KF og HK gerðu 2-2 jafntefli á Ólafsfjarðarvelli, en Þórður Birgisson, skoraði eins og oft áður tvö mörk fyrir heimamenn.
Völsungur vann þá 2-0 sigur á nýliðum KFR á Húsavík. Hafþór Mar Aðalgeirsson og Hrannar Björn Steingrímsson skoruðu mörk heimamanna.
KF er í fjórða sæti með 14 stig, HK í fimmta sæti og Völsungur í sjötta, en þau eru einnig með fjórtán stig. KFR er sem fyrr í botnsætinu með eitt stig.
Úrslit og markaskorarar af Úrslit.net:
KF 2-2 HK
1-0 Þórður Birgisson ('34 )
1-1 Markaskorara vantar ('43 )
1-2 Friðrik Þór Gunnarsson ('84 )
2-2 Þórður Birgisson ('90 )
Völsungur 2-0 KFR
1-0 Hafþór Mar Aðalgeirsson ('2 )
2-0 Hrannar Björn Steingrímsson ('60 )



