Heimild: Soccerway
Króatíski framherjinn Mario Mandzukic er í skýjunum með félagaskipti sín til FC Bayern í Þýskalandi.
Mandzukic, sem er 26 ára gamall, blómstraði á Evrópumótinu í Póllandi og Úkraínu þrátt fyrir að Króatía hafi ekki komist upp úr riðli sínum. Hann skoraði þrjú mörk í þremur leikjum og ákvað þýska stórliðið FC Bayern að kaupa hann í kjölfarið frá Wolfsburg.
Hann var að sjálfsögðu ánægður með skipti sín til Bayern, en hann mun keppast við nafna sinn Mario Gomez um sæti í byrjunarliðinu.
,,Það var ljúft að taka fyrstu skrefin á æfingasvæði Bayern. Það er frábært að vera hérna," sagði Mandzukic.


