Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 02. júlí 2012 13:00
Magnús Már Einarsson
Tómas Leifs: Ekki hægt að vera brjálaður þegar við spilum vel
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
,,Það má segja að þetta sé sex stiga leikur ef maður horfir á töfluna. Ef við myndum tapa í kvöld þá yrðum við svolítið eftir í kjallaranum svo við verðum eiginlega að vinna í kvöld," sagði Tómas Leifsson leikmaður Selfyssinga við Fótbolta.net í dag en liðið mætir Keflavík á útivelli í Pepsi-deildinni í kvöld.

Selfyssingar eru með sjö stig í tíunda sæti Pepsi-deildinnar, þremur stigum á eftir Keflvíkingum.

Síðasti sigur Selfyssinga í Pepsi-deildinni kom gegn Fram 21. maí en Tómas vonast til að liðið nái eftir að fylgja eftir bikarsigrinum á KB í síðustu viku með sigri í kvöld.

,,Sigur í kvöld myndi breyta ansi miklu. Við unnum góðan sigur síðast líka, þó að það hafi verið gegn KB þá var það góður sigur líka."

,,Við höfum verið fínir og inn í öllum leikjum í deildinni. Það hefur ekki verið að rúlla yfir okkur en við höfum klúðrað málunum svolítið sjálfir. Föst leikatriði eru að valda okkur höfuðverk en það er ekki hægt að vera brjálaður þegar við spilum vel, þetta hlýtur að detta, það getur ekki annað verið."

Selfyssingar hafa fengið afar mörg mörk á sig úr föstum leikatriðum en liðið hefur verið að vinna í að fækka þeim mörkum.

,,Við erum alltaf að rúlla yfir þau. Auðun (Helgason) aðstoðarþjálfari er alltaf með vörnina og markverðina að vinna í þessu. Þetta er líka spurning um sjálfstraust, þegar við fáum horn á okkur þá kannski fara menn í panic af því að það hefur ekki gengið vel. Við erum með góða skallamenn og við eigum alveg að geta þetta," sagði Tómas.
Slapp
banner
banner
banner