Sóknarmaðurinn Mario Balotelli sendi fjölmiðlum yfirlýsingu í gær þar sem hann staðfesti að hann og Raffaella Fico væru hætt saman.
Á mánudag sagði Rafaella fjölmiðlum frá því að hún ætti von á barni með Balotelli og að þau ætluðu að gefa sambandinu annað tækifæri. Balotelli fer nú fram á faðernispróf til að sanna það að hann sé pabbinn.
Á mánudag sagði Rafaella fjölmiðlum frá því að hún ætti von á barni með Balotelli og að þau ætluðu að gefa sambandinu annað tækifæri. Balotelli fer nú fram á faðernispróf til að sanna það að hann sé pabbinn.
„Þrátt fyrir að ég vilji ekki tala um einkalíf mitt í fjölmiðlum þá er ég tilneyddur núna til að koma því á hreint hvernig mál standa hjá mér og Raffaella Fico. Okkar sambandi lauk í lok apríl og síðan þá höfum við ekki sést né verið í sambandi," segir í yfirlýsingu Balotelli.
„Ég hef ekki haft í hyggju að byrja með henni aftur. Fyrir nokkrum dögum heyrði ég frá þriðja aðila að Raffaella væri ólétt. Því ákvað ég að hafa samband við hana og hún staðfesti að það væri satt. Það eru mér vonbrigði og ég tel það ekki eðlilegt að ég frétti af þessu þegar hún er komin fjóra mánuði á leið."
„Ég mun taka fulla ábyrgð þegar faðerni mitt hefur sannast. Það er mjög pirrandi að þetta mál hafi snúist um að selja myndir og viðtöl. Ég tel að Raffaella sé það fræg að hún þurfi ekki að nota þessa frétt til að gera sig þekktari."
„Þetta er í fyrsta og síðasta sinn sem ég tjái mig um þetta mál opinberlega og ég hef ekki í hyggju að svara frekari spurningum um málið, sama hvað Raffaella mun segja eða skrifa."



