Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 04. júlí 2012 09:10
Sebastían Sævarsson Meyer
Matthias Sammer nýr yfirmaður íþróttamála hjá FC Bayern
Matthias Sammer er nýr yfirmaður íþróttamála hjá Bayern München eftir að Christian Nerlinger var sagt upp störfum.

Sammer starfaði sem tæknilegur ráðgjafi þýska landsliðsins í sex ár áður en hann gekk í stjórn Bayern í vikunni.

Frá 2000-2004 þjálfaði hann Borussia Dortmund með góðum árangri en hann varð á þeim tíma yngsti þjálfarinn til þess að vinna þýsku úrvalsdeildina.

FC Bayern hefur ekki unnið titil á síðustu tveimur leiktíðum sem er ein af þeim ástæðum að Christian Nerlinger var látinn fara en hann hafði verið hjá þýska stórveldinu í fjögur ár.
Slapp
banner
banner