Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 04. júlí 2012 10:00
Magnús Már Einarsson
Andy Carroll til AC Milan?
Powerade
Eins og vanalega er nóg að gerast í slúðrinu í enska boltanum á þessum fína miðvikudegi.



AC Milan hefur áhuga á Andy Carroll framherja Liverpool. Pier Silvio Berlusconi, sonur eiganda AC Milan, vinnur sem ráðgjafi hjá félaginu þegar kemur að félagaskiptum og hann hefur áhuga á Carroll. (The Sun)

Everton hefur áhuga á Oscar Cardozo framherja Benfica en hann kostar 16 milljónir punda. Fenerbahce, Galatasaray, PSG og annað ónefnt félag í ensku úrvalsdeildinni hafa einnig áhuga á leikmanninum. (Talksport)

Andre Villas-Boas, nýráðinn stjóri Tottenham, fær að eyða 50 milljónum punda í sumar. Hann vill fá Loic Remy frá Marseille, Alan Dzagoev frá CSKA Moskvu, Gylfa Þór Sigurðsson frá Hoffenheim, Jan Vertonghen frá Ajax og Jack Butland markvörð Birmingham. (Daily Mirror)

Villas-Boas ætlar að reyna að fá Oscar frá Internacional. Þessi tvítugi leikmaður er metinn á 20 milljónir punda en hann spilar framarlega á miðjunni. (The Sun)

Sunderland, Stoke og Fulham hafa öll áhuga á Steven Fletcher framherja Wolves en Úlfarnir vilja fá tíu milljónir punda fyrir leikmanninn. (Daily Mirror)

David Moyes, stjóri Everton, er að íhuga að krækja í Hugo Rodallega en samningur hans við Wigan er útrunninn. (Daily Mail)

Italska félagið Napoli ætlar að reyna að fá Raul Meireles frá Chelsea. (Talksport)

Chelsea er að ganga frá kaupum á Maicon bakverði Inter. Maicon mun kosta sex milljónir punda en umboðsmaður hans er á leið til London til að ganga frá samningum. (Metro)

Malaga og Galatasaray vilja fá Nicklas Bendtner sem er á förum frá Arsenal. (Daily Mail)

Asamoah Gyan mun endanlega yfirgefa Sunderland og ganga í raðir Al-Ain á sjö milljónir punda. (The Sun)

Aston Villa vill fá Yacine Brahmi miðjumann Rennes á 2,5 milljónir punda. (The Sun)

Robin van Persie og Arsene Wenger munu ræða framtíð Hollendingsins í næstu viku. (Metro)

Wenger hefur hafnað tilboði um að taka við franska landsliðinu. (Daily Telegraph)

Brendan Rodgers, nýráðinn stjóri Liverpool, er bjartsýnn á að sannfæra Luis Suarez um að frramlengja samning sinn við félagið. (Metro)

Nicolas Anelka reifst harkalega við stuðningsmann Shanghai Shenhua sem gagnrýndi Anelka fyrir frammistöðu sína og fyrir að þakka ekki fyrir sig að leik loknum. (Daily Mirror)
Slapp
banner