Ísland og England færast upp FIFA-listann
Ísland fer upp um tvö sæti á nýjum styrkleikalista FIFA þrátt fyrir að hafa ekkert spilað síðan síðasti listi var gefinn út.
Þrátt fyrir að vera hærra á listanum núna er liðið í 129. sæti sem er ein versta staða þess síðan byrjað var að gefa út listann.
Gambía, Tansanía og Rúanda eru í sætunum fyrir ofan Ísland.
Spánverjar hafa styrkt stöðu sína á toppi listans, Þýskaland er komið upp um eitt sæti og er í öðru sæti eftir að hafa haft sætaskipti við Úrúgvæ. Í fjórða sæti er England sem fer upp um tvö sæti frá síðasta lista.
Portúgal og Ítalía eru einnig á uppleið á listanum og sitja í fimmta og sjötta sætinu.
Brasilía heldur áfram að hrapa niður listann og er nú í ellefta sæti.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
09:00