Nicolas Anelka og félagar í Shanghai Shenhua hafa aðeins unnið þrjá leiki af fimmtán í kínversku deildinni og eru einu stigi frá fallsæti.
Anelka er fyrirliði liðsins en er þó alls ekki vinsæll meðal stuðningsmanna þess. Um tíma var hann spilandi þjálfari með slæmum árangri en er í dag aðeins leikmaður.
Anelka er fyrirliði liðsins en er þó alls ekki vinsæll meðal stuðningsmanna þess. Um tíma var hann spilandi þjálfari með slæmum árangri en er í dag aðeins leikmaður.
Í síðustu umferð tapaði Shenhua fyrir botnliði Qingdao Jonoon 1-0.
Hefð er fyrir því að eftir leiki í Kína þakki leikmenn fyrir stuðning áhorfenda með því að hneigja sig fyrir framan stúkuna. Anelka fór beint inn í klefa án þess að hneigja sig og við það reiddust margir stuðningsmenn.
Einn var þó reiðari en aðrir, strunsaði inn á hótel liðsins og lenti í rifrildi við Anelka.

