Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 04. júlí 2012 11:35
Elvar Geir Magnússon
Gylfi Þór Sigurðsson til Tottenham (Staðfest)
Tottenham hefur staðfest á heimasíðu sinni að félagið hafi fest kaup á Gylfa Sigurðssyni.

„Það er okkur mikil ánægja að tilkynna það að við höfum gengið frá kaupum á Gylfa Sigurðssyni frá Hoffenheim," segir í yfirlýsingu frá Tottenham.

Gylfi lék frábærlega með Swansea seinni hluta síðasta tímabils eftir að hafa komið á lánssamningi frá Swansea City. Hann skoraði sjö mörk í 19 leikjum ásamt því að hann var valinn leikmaður mánaðarins í mars.

Í sumar var útlit fyrir það að Swansea væri að tryggja sér áframhaldandi þjónustu Gylfa en eftir að Brendan Rodgers fór til Liverpool bjuggust flestir við því að hann myndi fylgja honum þangað.

Gylfi flokkast því sem fyrstu kaup Andre Villas-Boas hjá Tottenham en Portúgalinn var tilkynntur sem knattspyrnustjóri félagsins í gær.

Fótbolti.net mun færa ykkur frekari fréttir af þessum félagaskiptum í dag.
Slapp
banner
banner