Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 04. júlí 2012 12:15
Magnús Már Einarsson
Guðni Bergsson: Í takt við metnað og áætlanir Gylfa
,,Þetta er stórt félag með mikinn metnað og nýjan og metnaðarfullan framkvæmdastjóra. Ég held að það sé í takt við metnað og áætlanir Gylfa," segir Guðni Bergsson fyrrum leikmaður Tottenham um félagaskipti Gylfa Þórs Sigurðssonar til Tottenham.

,,Allir sem hafa fylgst með enska boltanum hafa séð uppgang Tottenham á síðustu misserum. Þeir eru með mjög sterkan og skemmtilegan hóp og spila mjög skemmtilegan bolta. Maður vonar auðvitað að Gylfi eigi eftir að passa vel þar inn í."

Liverpool hafði einnig áhuga á Gylfa en hann valdi að ganga í raðir Tottenham á endanum. Telur Guðni að það sé rétt skref?

,,Það er ómögulegt að segja. Það er erfitt að dæma um það. Maður veit ekki hvað hefur gengið á og hvað honum fór á milli við framkvæmdastjóra Tottenham og Liverpool en það virðist vera meiri kraftur í Tottenham heldur en Liverpool þessa dagana."

Guðni lék með Tottenham frá 1988-1994 og hann telur að Gylfa verði tekið fagnandi hjá félaginu.

,,Það er gríðarlega góð stemning á White Hart Lane og liðið hefur verið þekkt fyrir að spila skemmtilega knattspyrnu í gegnum tíðina. Þeir munu örugglega kunna vel að meta Gylfa."

,,Hann leggur sig alltaf 100% fram og er ógnandi og skemmtilegur sóknarmaður. Ég efast ekki um það að honum verður vel tekið. Ég vona að honum gangi sem allra best og Tottenham verði í toppbaráttunni á næsta tímabili,"
sagði Guðni að lokum.
Slapp
banner