Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 04. júlí 2012 13:21
Magnús Már Einarsson
Þjálfari 4. flokks KA úrskurðaður í mánaðar bann
Sævar Pétursson.
Sævar Pétursson.
Mynd: Valgeir Kárason
Sævar Pétursson, þjálfari 4. flokks KA, var á fundi aganefndar KSÍ í gær úrskurðaður í mánaðar langt keppnisbann.

Sævar fékk að líta rauða spjaldið þegar B-lið KA og Breiðabliks áttust við í Kópavogi í síðustu viku.

Breiðablik komst í 2-1 á 37. mínútu leiksins eða í upphafi síðari hálfleiks þar sem að leiktíminn í 4. flokki er 2x35 mínútur.

Sævar, sem var kominn með gula spjaldið, mótmælti markinu og fékk í kjölfarið rauða spjaldið hjá Snorra Páli Einarssyni dómara leiksins.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net neitaði Sævar að yfirgefa hliðarlínuna og það varð til þess að Snorri Páll ákvað að flauta leikinn strax af þrátt fyrir að einungis 37 mínútur væru búnar af leiktímanum.

Sævar lék á sínum tíma með Val, Breiðabliki og Fram í efstu deild. Hann var spilandi þjálfari hjá Tindastóli í annarri deildinni árið 2009 og í fyrra lék hann nokkra leiki með Einherja í þriðju deildinni.
Slapp