Eins og við höfum greint frá hefur Tottenham tilkynnt um kaupin á Gylfa Sigurðssyni frá Hoffenheim.
Þessi 22 ára íslenski landsliðsmaður er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Tottenham síðan Andre Villas-Boas tók við knattspyrnustjórn.
Þessi 22 ára íslenski landsliðsmaður er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Tottenham síðan Andre Villas-Boas tók við knattspyrnustjórn.
Samkvæmt vefsíðunni Goal.com þá hefur Gylfi samþykkt samning sem færir honum 50 þúsund pund í vikulaun, eða tæplega 10 milljónir íslenskra króna. Hann er því að fá 1,4 milljón króna á dag ef þetta er satt.
Margir telja að fréttirnar af komu Gylfa þýði að Luka Modric eða Rafael Van der Vaart séu á förum frá Tottenham.



