AC Milan kaupir 14 ára gamlan leikmann fyrir metfé
AC Milan hefur keypt hinn 14 ára gamla Hachim Mastour frá Reggiana á 500 þúsund evrur eða 80 milljónir krónar íslenskar sem er metfé fyrir svo ungan leikmann.
Þessi bráðefnilegi framherij er fæddur árið 1998 en hann hefur verið kallaður hinn marokkóski Messi.
,,Mastour virðist hafa mikla hæfileika en við skulum ekki setja of mikla pressu á hann. Mastour er 14 ára gamall. Hann á framtíðina fyrir sér en hann er bara ennþá krakki," sagði Adriano Galliani varaforseti AC Milan.
Mastour vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína síðasta vetur en Inter Milan, Real Madrid, Barcelona, Juventus og Manchester City sýndu honum einnig áhuga.
Hér að neðan má sjá Hachim leika listir sínar með litla bolta.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar