Freddie Sears til Colchester (Staðfest)
Colchester í ensku C-deildinni hefur krækt í framherjann Freddie Sears frá West Ham.
Þessi 22 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við Colchester en hann kemur frítt til félagsins.
Sears þekkir til hjá Colchester því hann skoraði tvö mörk í ellefu leikjum á láni hjá félaginu á síðasta tímabili.
Sears var á sínum tíma í U21 árs landsliði Englendinga en hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik með West Ham einungis 18 ára gamall.
Undanfarin ár hefur Sears ekki náð að fylgja því eftir en auk Colchester hefur hann verið á láni hjá Crystal Palace, Coventry og Scunthorpe.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar