Heimild: AFP
Breno, varnarmaður FC Bayern, var í dag dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi.
Þessi 22 ára gamli Brasilíumaður kveikti í lúxusíbúð sinni í Þýskalandi þann 20. september síðastliðinn og hann hefur nú verið dæmdur í fangelsi af þeim sökum.
Þessi 22 ára gamli Brasilíumaður kveikti í lúxusíbúð sinni í Þýskalandi þann 20. september síðastliðinn og hann hefur nú verið dæmdur í fangelsi af þeim sökum.
Talið er að Breno hafi verið drukkinn þegar atvikið átti sér stað en hann svaraði því ekki fyrir rétti í morgun hvort íkveikjan hefði verið af ásetningi eða ekki.
Skemmdirnar sem urðu af völdum brunans eru í kringum eina milljón evra.
Breno lék ekkert með Bayern á nýlinðu tímabili vegna hnémeiðsla en samningur hans við félagið var að renna út.



