Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 04. júlí 2012 16:32
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Guardian 
Van Persie staðfestir að hann semur ekki aftur við Arsenal
Robin van Persie framherji Arsenal og hollenska landsliðsins tilkynnti á vef sínum rétt í þessu að hann muni ekki framlengja samninig sínum við félagið sem rennur út næsta sumar.

,,Eins og ég tilkynnti fyrr á árinu fundaði ég með stjóranum (Arsene Wenger) og herra (Ivan) Gazidis eftir tímabilið. Þetta var fundur um framtíðaráform félagsins. Ekki er búið að ræða um fjárhagslega skilamála eða samning, enda var það alls ekki forgangsatriði hjá mér."

,,Ég átti sjálfur frábært tímabil en markmið mitt hefur verið að vinna titla með liðinu og koma liðinu aftur á glæsta daga. Af mikilli virðingu minni við herra Wenger, leikmennina og stuðningsmennina vil ég ekki fara út í nein smáatriði, en því miður kom það aftur í ljós á þessum fundi að við erum ósammála á margan hátt með hvernig Arsenal á að stíga fram."

,,Ég hef hugsað mikið og lengi um þetta en ákvað að framlengja ekki samninginn minn. Þið, stuðningsmennirnir, hafið auðvitað rétt til þess að vera ósammála skoðun minni og ákvörðun og ég muna alltaf virða skoðanir ykkar."

,,Ég elska félagið og stuðningsmennina, sama hvað gerist. Ég hef þroskast og orðið maður á þeim tíma sem ég hef verið hjá Arsenal. allir hjá félaginu og stuðningsmennirnir hafa alltaf stutt mig í gegnum árin og ég hef alltaf gefið allt og meira innan sem utan vallar. Ég er stoltur af því að vera hluti af þessu frábæra félagi undanfarin átta ár. Um leið og herra Gazidis kemur aftur úr tveggja vikna fríi í Bandaríkjunum munu fara fram frekari fundir og ég mun leyfa ykkur að heyra hvort og þá hvenær eitthvað frekara gerist."

Slapp
banner