Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 04. júlí 2012 19:13
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Samir Handanovic á leið til Inter
Slóvenski markvörðurinn Samir Handanovic er á leið til Inter Milan á Ítalíu, en hann leikur með Udinese.

Handanovic, sem er 27 ára gamall hefur verið lykilmaður í liði Udinese undanfarin ár, en hann er talinn einhver eftirsóttasti markvörður heimsins og hafa fjölmörg lið verið orðuð við kappann.

Udinese hefur nú staðfest að félagið hafi náð samningum við Inter Milan um leikmanninn og aðeins séu nokkur smáatriði eftir.

Davide Faraoni fer til í hina áttina til Udinese sem partur af kaupunum, en hann er ungur bakvörður.

Þetta gefur það sterklega til kynna að Julio Cesar, sem hefur verið aðalmarkvörður Inter síðustu ár, sé á leið frá félaginu, en hann hefur verið orðaður við nágrannaliðið, AC Milan.
Slapp
banner
banner