Svíþjóð: Sætur sigur hjá Betu og Kristianstad
Íslendingaliðið Kristianstad lék gegn Pitea í kvöld.
Elísabet Gunnarsdóttir var að venju með Sif Atladóttur í vörninni og Katrínu Ómarsdóttur á miðjunni, Katrín fór svo af velli á 73. mínútu en Sif kláraði allan leikinn.
Hallbera var á bekknum hjá Pitea og kom ekkert við sögu.
Pitea fékk draumabyrjun á þriðju mínútu leiksins þegar Sofie Persson kom gestunum yfir úr aukaspyrnu rétt fyrir utan teig.
Leikmenn Kristianstad voru ekkert að leggja árar í bát enda nánast heilar 90 mínútur eftir af leiknum.
Markmaður Pitea, Maria Rönnback, varði vel frá Katrínu þegar hún átti gott skot að marki og stuttu síðar átti Mia Carlsson skot á slána.
Á 38. mínútu skoraði danski landsliðsmaðurinn Johanna Rasmussen fyrir Kristianstad og staðan orðin jöfn.
Í seinni hálfleik náði Pitea aftur að komast yfir með marki frá Jona Pedersen en sirka 20 mínútum síðar jafnaði Becky Edwards.
Kristianstad sem átti leikinn, þrátt fyrir að hafa verið í smá eltingarleik, fékk 9 horn og átti 21 skot að marki gestanna.
Liðið skoraði svo síðasta markið í uppbótartíma en þá fékk Kristianstad dæmda vítaspyrnu. Kosovare Asllani tók spyrnuna, Rönnback fór í rétt horn en spyrnan var of föst og þar með fóru Beta og leikmenn hennar með sætan sigur af hólmi.
Kristianstad er í 4. sæti með 22 stig, 6 stigum á eftir Tyresö sem er á toppnum um þessar mundir. Pitea er í 7. sæti með 16 stig.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:00
11:12