Balotelli í fríi - Reykir og hellir í sig kampavíni
Eftir góða frammistöðu á EM er Mario Balotelli, sóknarmaður Ítalíu og Manchester City, loks kominn í sumarfrí.
Og hann er ekki lengi að koma sér í glanstímaritin...
Þessi 21 árs grallari er staddur á frönsku riveríunni þar sem hann lét dekra við sig á laugardagskvöld.
Meðan hann lét nudda axlir sínar reykti hann vatnspípu og hellti í sig rándýru kampavíni í VIP herbergi á vinsælum skemmtistöð.
Í næstu viku hefur Balotelli æfingar fyrir nýtt tímabil. Flestir af liðsfélögum hans hófu undirbúning í gær en Balotelli og aðrir leikmenn City sem voru í eldlínunni á Evrópumótinu fá lengra frí.
Balotelli er líklega að verða pabbi í fyrsta sinn. Raffaella Fico, fyrrum kærasta hans, ber barn undir belti en Balotelli hefur krafist þess að faðernispróf verði gert. Raffaella er komin fjóra mánuði á leið.
Fleiri myndir má sjá á heimasíðu The Mirror eða með því að smella hér.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
11:12