Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 09. júlí 2012 17:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Manchester United | BBC 
Sir Alex Ferguson: Gat ekki gefið Park nógu marga leiki
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að Ji-Sung Park hafi yfirgefið félagið til að fá að spila fleiri leiki. Park gekk í raðir QPR í dag eftir sjö ára dvöl hjá Manchester United.

,,Hann er alvöru atvinnumaður og góður strákur. Hann olli aldrei vonbrigðum í stórleikjum," sagði Sir Alex.

,,Því miður gat ég ekki leyft honum að spila jafnmarga leiki og hann vildi."

Park, sem er 31 árs, kveður sjálfur Manchester United með söknuði. ,,Tími minn hjá United verður í hjarta mínu út líf mitt," sagði Park.

,,Það hafa verið mikil forréttindi að vera hluti af svona frábæru liði, vinna svona marga titla og að hafa spilað með þessum liðsfélögum undir stjórn besta stjóra í heimi."
Slapp
banner
banner