Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 10. júlí 2012 07:00
Magnús Már Einarsson
Jóhann Helga: Donni talar mikið um þetta tímabil hjá Boney M
Stemningin skoðuð hjá Tindastóli
Mynd: Valgeir Kárason
Mynd: Valgeir Kárason
Mynd: Valgeir Kárason
Líkt og undanfarin ár mun Fótbolti.net kíkja á stemninguna hjá liðunum í neðri deildunum reglulega fram á haust í liðnum ,,Hvað er að frétta?"

Að þessu sinni skoðum við stemninguna hjá Drangey í 3. deildinni en Jóhann Helgason leikmaður liðsins svaraði spurningum.

Eldra efni í ,,Hvað er að frétta?"

Hvernig er stemningin hjá Drangey fyrir sumarið?
Jú hún er bara djöfull góð. Menn eru spenntur fyrir verkefninu og hlakka til sumarsins.

Er liðið í miklu samstarfi við Tindastól?
Já liðin æfa á sama tíma enda má segja að þetta sé B-lið Tindastóls þó svo að Drangeyjarmenn séu yfirleitt með yfirburði á æfingum enda ekkert nema heljarmenni í þeim hópi... En liðið er almennt undir merkjum Tindastóls frá búningnum og inn að hjarta.

Hver var kveikjan að stofnun félagsins?
Kveikjan að stofnun félagsins var sú að margir efnilegir leikmenn hafa verið að koma upp úr 2.flokki Tindastóls síðustu 2 ár sem voru kannski ekki alveg klárir í 1.deild strax. Þannig að það var ákveðið að senda út lið í 3.deild til að þessir strákar fengju dýrmæta leikreynslu og gætu haldið áfram að æfa og spila fyrir klúbbinn í stað þess að þurfa að fara í annað lið eða einfaldlega hætta eins og oft vill verða. Einnig var þetta gott fyrir nokkra gamla jaxla sem ekki voru alveg tilbúnir í að fleygja skóbúnaðinum upp í hillu strax.

Hvernig er hópurinn byggður upp?
Hann er eins og áður sagði byggður upp á kjúklingum sem eru rétt skriðnir upp úr eða eru enn í 2.flokki og svo nokkrar hetjur sem eru aðeins eldri en taka gríðarlegar þyngdir í bekk.

Ertu ánægður með byrjun liðsins í sumar?
Já þetta hefur farið ágætlega af stað og eru menn nokkuð sáttir. Þetta er erfið deild og mikið um óvænt úrslit en ég viss um að ef við höldum okkar striki þá náum við markmiðum okkar.

Hvert er markmið sumarsins hjá ykkur?
Markmiðið er að komast í úrslitakeppnina og slást um sæti í 2.deild ásamt því að menn bæti sig og þroskist sem knattspyrnumenn.

Lýstu liðinu í þremur orðum:
Fegurð, upphandlegsvöðvar og Sigurður Halldórsson.

Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um: Félagið er skráð undir nafninu Drangey en er upphaflega Siglingaklúbburinn Drangey á Sauðárkróki. Þrátt fyrir það efast ég stórlega um að megnið af drengjunum hafi einhverntíma migið í saltann sjó...

Eitthvað að lokum? Já, hljómsveitin Boney M sem stofnuð var árið 1975 átti mikilli velgengni að fagna um seinnipart 8. áratugarins en fór svo að dala í byrjun þess 9. Margir segja ástæðuna fyrir því þá að Bobby Farell var rekinn úr sveitinni árið 1980 vegna slakrar þáttöku í verkefnum sveitarinnar. Eftir brotthvarf hans fór sveitin að dala mikið og gáfu út nokkrar skelfilegar plötur næstu ár á eftir. Donni þjálfari talar mikið um þetta tímabil í hjá Boney M og minnir okkur stöðugt á að ef að við æfum ekki og leggjum ekki nægilega mikinn metnað í verkefnið þá gæti farið fyrir okkur eins og Boney M. Hann er eiginlega alltaf að tala um þetta og svo spilar hann bara Bonarann fyrir leiki og í rútunni á leiðinni í leiki bara svo að við gleymum ekki hvernig getur farið fyrir okkur ef við sinnum þessu ekki.
Slapp
banner
banner